2000 kall inn. Takk og bless.
Maður er nú ekki búinn að gera neitt annað en að læra fyrir Reikningshaldsprófið sem verður á laugardaginn. Get frætt þá sem vilja um prófjöfnuð, sjóðsstreymi, bankaafstemnigu, fifo, lifo, meðaltalsaðferð og ég veit ekki hvað og hvað en er að hugsa um að sleppa því að svo stöddu. En já fyrsta prófið mitt í háskóla fer fram á laugardegi. Ekki alveg nógu sáttur með það, en maður fær víst engu ráðið um þetta. Var að fá sendan póst áðan sem að innihélt upplýsingar í hvaða byggingu ég tek prófið, í hvaða stofu ég tek prófið og það sem fannst best, við hvaða borð ég á að sitja. Aldrei var það nú þannig í F.S.H að gimbillinn myndi vísa manni til sætis. En það hlýtur að vera einhver góð ástæða fyrir þessu.
Nú eru bara sirka 2 vikur þangað til að maður kemst í jólafrí. Mamma er alltaf svo góð við mig að hringja reglulega til að láta mig vita hvaða smákökur hún er að baka hverju sinni. Það hjálpar alveg helling í próflestrinum. Maður sitjandi og reikna og svo er maður bara látinn vita af því að ef að maður væri heima á Húsavík, gæti maður fengið sér laufabrauð, brúna niðurskorna (herðubreið held ég að það heiti), mömmukökur og púðursykurkökur. Ekki beint til að maður haldi huganum við bækurna
Að öðrum hlutum. Ég er að verða búinn að kaupa allar jólagjafirnar. Á bara eftir að kaupa eitthvað handa gamla settinu, Eyrúnu, Siggu Lóu og Árnýju. Spurning hvort að maður fari ekki að versla eftir próf á morgunn. Er að hugsa um að kaupa eitthvað af jólaskrauti í leiðinni. Gengur ekkert að hafa þetta einu óskreyttu íbúðina í blokkinni um jólin þó það verði enginn hérna. Lágmark að hafa alla vega aðventuljós í glugganum
Biggi fór til Kosta Ríka í dag og af því tilefni ætlaði Friðgeir að bjóða mér, Gísla, Finni og Bigga í mat heim til Bigga og Finns á Þriðjudaginn til að kveðja Bigga. Eitthvað klikkaði það samt, þannig að sú ákvörðun var tekin að fara á Ruby Tuesday’s í staðinn. Þar var ákveðið að fá sér stóra hamborgarann sem að er alltaf í sjónvarpsauglýsingunum. Þetta var stærsti hamborgari sem að ég hef borðað yfir ævina, hann var svo stór að maður náði varla að klára hann. En hann var góður og það er víst það sem skiptir máli.
Sólrún systir kom svo í heimsókn síðustu helgi. Hún var víst að fara á Rockstar tónleikana. Hún hafði það á orði að það væri skrýtið að koma í heimsókn bara til mín, ekki svona að vera að fara til mömmu og pabba og sjá mig svona í leiðinni. Þá fór maður að spá í því hvað þetta væri í raun skrýtið að búa bara ekkert “heima” lengur og vera bara að fá mömmu og pabba og aðra ættingja í heimsókn. Verður líka skrýtið um jólin að vera bara gestur “heima”. Þurfa að gista á dýnu á gólfinu inni í stofu eða eitthvað. Verður samt gaman að komast heim og sjá allar breytingarnar sem gerðar hafa verið á neðri hæðinni. Sjá t.d. sjónvarpið sem að pabbi keypti þegar hann var fyrir sunnan síðast. Fór með honum í Elko þar sem að pabbi sá 15” lcd sjónvarp. Pabbi fór eitthvað að spyrja afgreiðslu manninn um þetta sjónvarp. Fékk þá spurningu um hvort hann ætlaði að hafa þetta inni í eldhúsi. Pabbi svaraði bara alveg kaldur að þetta ætti að vera inn á baði. Hélt að afgreiðlusmaðurinn yrði ekki eldri. En það er víst svona þegar maður flytur að heiman. Þá er farið að gera húsið enn flottari bara til að maður vilji flytja heim aftur. Settið einmitt nýbúið að splæsa í 2 manna nuddbaðkar og þetta sjónvarp á víst að vera á veggnum fyrir ofan það svo maður geti horft á sjónvarpið í baði. Eitthvað sem að segir mér að það verði nýtt sér það á aðfangadag.
Er samt að hugsa um að reikna eins og 2 gömul próf í reikningshaldi í viðbót svo að maður verði 110% klár á þessu áður en að maður fer í prófið á morgun. Ekki búast við öðru bloggi hérna fyrr en eftir próftörnina. Síðasta prófið mitt er 21. des eins og fram hefur komið áður. Pirrandi því að það eru flestir vinir mínir að detta í frí á allra næstu dögum.
